Starfssvið og áherslur
Innan Ísfélags Þorlákshafnar hf eru þrjár rekstrar einingar,
- frystivöruhótel
- vöruhótel
- skipaafgreiðsla
- ísframleiðsla
Undir merkinu Kuldaboli er frystivöruhótelið og skipaafgreiðslan rekin.
Kuldaboli stendur fyrir traust, árangur og sveigjanlega þjónustu sem eru áhersluþættir okkar í samskiptum við viðskiptavini og meðal starfsmanna félagsins.
Hlutverk og áherslur
Hlutverk Ísfélags Þorlákshafnar hf. er að reka vöruhótel bæði fyrir frysti- og þurrvöru, tengda dreifingarstarfsemi, alhliða skipaafgreiðslu, ísframleiðslu og dreifingu ásamt tengdri þjónustu á skilgreindu markaðssvæði félagsins, sem er Ísland og Norður-Atlantshaf, til að auka verðmæti fyrir hluthafa félagsins.
Félagið leggur áherslu á að veita viðskiptavinum trausta og hagkvæma þjónustu, til að skapa viðskiptavinum aukin verðmæti.
Félagið leggur áherslu á, að veita starfsmönnum gott starfsumhverfi og möguleika til að þroskast og vaxa í starfi.