Ísverksmiðjan í ÞorlákshöfnKuldaboli í Þorlákshöfn var opnaður haustið 1999 sem fullkomnasta frystivöruhótel sem þjónar matvælaframleiðendum jafnt sem innflytjendum og útflytjendum.  Þar er á einum stað afar tæknivædd geymsla fyrir frystar afurðir, skilvirk dreifingarstöð, sérútbúið skoðunarherbergi til gæðaeftirlits vöru og þar er skoðunarstöð fyrir ytra landamæraeftirlit með matvælum á Evrópska efnahagssvæðinu, í samræmi við ákvæði Schengen-samkomulagsins.
 Kuldaboli er tæknilega fullkomin í alla staði og stenst ítrustu kröfur um meðferð og geymslu matvæla.   Kuldaboli er sérhæft vöruhótel fyrir skammtíma jafnt sem langtíma geymslu á frystivöru.  Þar á meðal má nefna umhverfisvænt kæli- og frystikerfi sem byggir á notkun HyCool kuldaberatækni.   Vatn er fengið frá Vatnsveitu Þorlákshafnar og hefur það GÁMES (HACCP) vottun.  Fullkomið stjórnkerfi vörhótelsins heldur kælingunni stöðugri og viðskiptavinir geta fengið nákvæmt yfirlit um hitastig á geymslutíma.
Kalt þjónusturými er um 300 m2 fyrir framan frystigeymsluna.  Þar er hægt að afgreiða þrjá gáma eða flutningabíla samtímis um sérútbúnar afgreiðsludyr með hæðarjöfnurum.   Lyfturum er ekið beint af gólfi þjónusturýmisins inn í gám eða flutningabíl.   Einnig er fullkomin aðstaða til móttöku og flokkunar á frosnum afurðum beint úr frystiskipum.
Hérna er hægt að flytja vöruna með lyfturum um leið og hún kemur á bryggjuna við löndun uppí kælt þjónusturými og flokka hana þar, óháð veðri og vindum.  Öll vara er strikamerkt og móttaka og afhending skráð rafrænt um leið og varan fer á færiböndum inn og út úr frystigeymslu.  Lyftarar í geymslunni eru útbúnir með sérstökum lesurum fyrir strikamerki í þráðlausu sambandi við samhæft upplýsingakerfi Kuldabola.  Með því móti er tryggt að hver pallur fari á rétta hillu við móttöku og réttur pallur sé tekinn úr hillu við afhendingu vörunnar.
 
 
Í Kuldabola er :
Við leggjum metnað okkar í góða þjónustu, byggða á langri og víðtækri reynslu.
Við vitum að það skilar okkur ánægðum viðskiptavinum, sem er besti mælikvarðinn á störf okkar.
Hafðu samband.  Við tökum hlýlega á móti þér  !