Þann 13. september 1984 var ákveðið af mörgum áhuga- og athafnamönnum að stofna Ísfélag Þorlákshafnar hf. til að þjónusta útgerðir og fiskvinnslur með íssölu í Þorlákshöfn. Hafist var handa við að reisa ísverksmiðju við enda Svartaskersbryggju í Þorlákshöfn. Ísverksmiðjan framleiðir núll gráðu plötuís og er afkastagetan um 60 tonn á sólarhring. Fyrsti starfsmaðurinn var ráðinn Gestur Ámundason og var hann jafnframt framkvæmdastjóri.
Það var svo 1. október 1985 að verksmiðjan var tekin í notkun og má segja að þar hafi verið brotið blað í útgerðarsögu Þorlákshafnar, því að í stað vörubíls og snígils var komin blástursbúnaður sem var lagður frá verksmiðjunni niður á bryggjukant, þar sem bátar og skip gátu tekið slöngvubarka og leitt hann ofan í lest og blásið ísnum um borð. Við ísverksmiðjuna sjálfa var svo íssnigill sem renndi ísnum beint í kör.
Árið 1994 var þjónustan bætt ennfrekar, þegar byggð var trébryggja að frumkvæði félagsins beint fyrir neðan ísverksmiðjuna samfara því var bætt við einum nýjum afgreiðslustað á nýju trébryggjunni. Þetta þýddi að nú gátu þrjú skip legið í plássum þar sem hægt var að taka ísinn beint um borð.
Árið 1998 var tekið enn eitt skrefið til að breikka þjónustusvið félagsins, þegar hluthafafundur samþykkti þann 22. október að veita stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé og fara út í byggingu á frystivöruhóteli, sem síðar var gefið nafnið KULDABOLI.
Framkvæmdir við byggingu KULDABOLA hófust svo vorið 1999, en það var verktakafyrirtækið Ístak hf. sem annaðist verkið í alverktöku. KULDABOLI var síðan formlega tekin í notkun6. nóvember 1999 sem eitt fullkomnasta frystivöruhótel heims. KULDABOLI hefur það fram yfir mörg önnur frystivöruhótel að notast við umhverfisvænan kælimiðil sem byggir á notkun HyCool kuldaberatækni sem stenst ítrustu kröfur Evrópusambandsins.
Kuldaboli er sérhæft frystivöruhótel fyrir skammtíma jafnt sem langtíma geymslu á frystivöru. Öflugt upplýsingatækni kerfi er í húsinu, þannig að öll vara er strikamerkt og móttaka og afhending er skráð rafrænt um leið og varan fer á færiböndum inn og út úr geymslunni. Lyftarar í frystiklefum eru líka útbúnir með sérstökum lesurum fyrir strikamerki í þráðlausu sambandi við upplýsingakerfi Kuldabola. Með því móti er tryggt að hvert bretti fari í rétt hólf við móttöku og rétt bretti sé tekið úr hólfi við afhendingu vörunnar. Með þessu er hægt að rekja allt ferli vörunnar nákvæmlega og tryggja viðskiptavinum mikið öryggi við allt lagerhald, dreifingu og vandaða vörumeðferð.
Ásamt þessu stóra og metnaðarfulla verkefni, þá var haldið áfram að þróa þjónustu ísverksmiðjunnar, því í upphafi ársins 1999 var tekið í notkun nýtt sjálfsafgreiðslukerfi fyrir sölu og afgreiðslu á ís úr ísverksmiðjunni. Fyrir þessa breytingu var afgreiðslunni stjórnað handvirkt sem kallaði alltaf á fasta viðveru í ísverksmiðjunni þegar afgreiddur var ís. Með innleiðingu á nýja búnaðinum, fengu viðskiptavinir númer og gátu þar með afgreitt sig sjálfir hvenær sem þeim hentaði og þar með gátu við gert þjónustuna hagkvæmari og hagstæðari fyrir okkar viðskiptavini.
Árið 2000 hélt þróunin áfram þegar félagið tók í notkun ísvagninn sem var útbúin með afgreiðslubúnaði sem virkaði alveg eins og afgreiðslustaðirnir sem félagið var með niður á bryggjunum. Þetta þýddi að markassvæði félagsins stækkaði og núna var hægt að selja ís með afhendingarþjónustu á öllu suðvestur horni landsins og jafnvel víðar. Þessi nýja þjónusta hefur valdið byltingu í dreifingu á ís á höfuðborgarsvæðinu, þar sem viðskiptavinurinn fær nú vöruna beint á notkunarstað. Samið var við flutningafyrirtækið ET um að þjónusta ísvagninn.
Árið 2001 var enn eitt skrefið tekið í uppbyggingu félagsins, þegar yfirtekin var skipaafgreiðsla sem Skipaþjónusta Suðurlands hf hafði starfrækt. Hérna var félagið orðið öflugara þjónustufyrirtæki með þrjár rekstrareiningar, ísframleiðslu, frystivöruhótel og skipaafgreiðslu.