Löndunarþjónusta Kuldabola
Kuldaboli býður upp á alhliða þjónustu við frystitogara og fiskiskip. Löndun, geymsla, landamærastöð, tollvörugeymslu, flutningar og tilheyrandi þjónusta þar sem hraði, sveigjanleiki og fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi.
Í Kuldabola er aðstaða fyrir ytra landamæraeftirlit með matvælum á Evrópska efnahagssvæðinu, í samræmi við ákvæði Schengen-samkomulagsins.
Að lokinni löndun er hægt að geyma aflann í frystivöruhóteli Kuldabola eða setja hann beint í gáma til útflutnings. Nálægð löndunar, geymslu og flutningaþjónustu tryggir gæði hráefnisins og hagkvæmni fyrir seljendur jafnt sem kaupendur.
Þurrvörugeymsla er einnig á hafnarsvæðinu, sem jafnframt er tollvörugeymsla.
Við bjóðum ....
-
góða aðstöðu til löndunarþjónustu í Þorlákshöfn.
-
hraða og örugga þjónustu við losun og lestun á flutningaskipum, sbr. áburð, fiskimjöl, pallavöru ofl.
-
löndunarþjónustu alla daga vikunnar.
-
löndun beint í fullkomið frystivöruhótel Kuldabola, sem er á hafnarbakkanum eða beint í gáma til útflutnings.
-
þjónustu við Fiskmarkað Íslands hf. í Þorlákshöfn.
-
þjónustu 3 tonna diesellyftara, flutningatækis og gámalyftara.
-
vörubretti (1 * 1,2 m) sem við framleiðum sjálfir.
-
Í Kuldabola er 300 m2 kælt þjónusturými sem hægt er að nota til að flokka frystivöru í skjóli fyrir veðri og vindum.
-
Í Kuldabola er landamærastöð, þ.e. aðstaða fyrir ytra landamæraeftirlit með matvælum á Evrópska efnahagssvæðinu.
-
Kuldaboli er tollvörugeymsla.
-
Kuldaboli er í góðu samstarfi við öll helstu flutningafyrirtæki landsins.
-
Kuldaboli er frystivöruhótel sem uppfyllir þínar kröfur og mætir þínum þörfum.
Hafðu samband. Við tökum hlýlega á móti þér.